Gott Ráð hefur þjónustað og framkvæmt hulduheimsóknir hjá fjölda fyrirtækja í rúm tuttugu ár. Má þar nefna skyndibitastaði, veitingahús, fata-, ritfanga-, gjafa-, skart-, skóverslanir, fjarskiptafyrirtæki, bensínstöðvar, matvöruverslanir, verslunarmiðstöðvar, tryggingafélög, hótel, flugfélög og þannig mætti lengi telja.
Samstillt átak þarf til að ná árangri og Gott Ráð hefur unnið náið með viðskiptavinum sínum á þeirri vegferð.
Frá upphafi var það haft að leiðarljósi að leggja áherslu á þrennt:
- Persónulega ráðgjöf og þjónustu.
- Einfaldleika í allri uppsetningu og framsetningu.
- Góð verð.